Flot

Til að ná fullkominni slökun og ró er engin leið betri en að fljóta í þyngdarleysi í floti.

Flot-REST meðferð getur bætt hjarta- og æðasjúkdóma þína með því að framkalla djúpa slökun sem dregur úr streitustigi og bætir svefn, samkvæmt rannsóknum. Langvarandi streita og svefnskortur hefur verið tengdur við háan blóðþrýsting og hjarta- og æðasjúkdóma.

Epsom magnesíum saltið sem er blandað út í 35°C heitt vatn (sama hitastig og húðin) gerir það að verkum að það slakast á vöðvum og þú nærð að endurnæra líkama og sál. Flotið eykur blóðflæði og er gott við höfuðverkjum. Fljótandi hugleiðsla nær til okkar dýpstu vöðva sem þýðir að hún dregur úr verkjum og bólgum í liðum, baki og hálsi.

Hvert flot er 60 mín. Fyrstu 10 mín heyrist róandi músík/náttúruhljóð. Þá kemur þögn í 45 mín og síðustu 5 mín heyrst róandi músík/náttúruhljóð að nýju.

Hvað þarf ég að koma með?

Þú þarft bara að mæta. Við útvegum handklæði, sjampó, hárnæringu og sápu. Við mælum með því að fólk sé nakið í flotinu þannig að þú þarft bara að mæta og við sjáum um rest.

Hvernig virkar flotið?

Tíminn er 60 mínútur. Fyrstu 10 mínúturnar heyrir þú náttúruhljóð og svo algjöra þögn í 45 mínútur. Síðustu 5 mínúturnar koma náttúruhljóðin aftur, til að láta þig vita að tíminn sé að veða búinn. Þegar náttúruhljóðin hætta, þá er tíminn búinn og þú kemur úr tankinum og ferð í sturtu.

Hvernig næ ég að fljóta?

Í hvorum flottanki fyrir sig erum við með um 1.000 lítra af vatni og um 530 kg af Epsom/Magnesíum salti. Svona hátt salthlutfall gerir það að verkum að þú flýtur áreynslulaust og nærð fullkominni slökun.

Hvað ef ég sofna í flotinu?

Við leggjum áherslu á að þú náir fullkominni slökun. Ef þú sofnar þá er það í góðu lagi. Saltmagnið í vatninu heldur þér á floti og þú nærð ekki að fara á hliðina. Það eru margir sem sofna í flotinu og ná þannig fullkominni slökun.