Innrautt teppi

Innrauðu teppin frá HigherDose innihalda fjærinnrautt ljós. Þau auka varmaorku líkamans og stuðla að tímabundinni aukningu á blóðflæði - svo þú svitnar eins og þú ert að æfa, án þess að vinna.

Þegar þú slakar á í róandi, en samt örvandi hita, veitir innrautt ljósið einnig upplífgandi tilfinningu. Meðferðin er 45 mínútur og veitir þér ró, eykur slökun og mýkir vöðva og liðamót. Niðurstaðan er heilbrigð og endurnærandi upplifun.

Við mælum ekki með að drekka kaffi eða koffíndrykki nokkrar klukkustundir fyrir meðferðina. Mikilvægt er að vera í langerma bol, síðbuxum og sokkum, en það er líka mögulegt að leigja jogging galla á staðnum.

 

Hvað er innrautt ljós (e. Infrared Light)?

Innrauðu ljósi er oft skipt í tvennt, nærinnrautt og fjærinnrautt. Nærinnrautt ljós liggur næst sýnilegu ljósi en fjærinnrautt er nær örbylgjuhluta rafsegulrófsins. Fjærinnrautt ljós er því með lengri bylgjulengd heldur en nærinnrautt.

Fjærinnrautt ljós eru varmageislar sem við finnum fyrir á degi hverjum sem hita. Hitinn sem við finnum frá sólarljósi, arineldi eða ofni er fjærinnrautt ljós. Hitanæmu taugaendarnir á húðinni greina þessa geislun.

HigherDose teppin okkar eru með fjærinnrautt ljós.

Hvernig er meðferðin?

Í meðferðinni liggur þú í góðu yfirlæti á bekk með kodda og í jogging galla, vafin(n) í innrautt teppi (e. Infrared blanket), hálfgerðan svefnpoka. Meðferðin sjálf tekur 45 mínútur og þú ræður hitanum sjálf(ur). Við kíkjum inn til þín reglulega á meðan meðferð stendur og þegar 10 mínútur eru eftir setjum við kaldan bakstur á ennið þitt.

Þarf ég að taka eitthvað með?

Mikilvægt að vera í langerma bol, síðbuxum og sokkum. Þú getur einnig leigt af okkur jogging galla fyrir 990 kr.

Gott er að taka með sér heyrnartól og hlusta á gott podcast í farsímanum sínum á meðan meðferðin er.